Sögulegur menningarviðburður 19. ágúst 2010 06:00 Engar veimiltítur Dolph Lundgren og Sly Stallone börðust í Rocky en snúa núna bökum saman. Arnold Schwarzenegger og Stallone háðu harða baráttu um konungstign Hollywood á níunda áratugnum en leika nú á móti hvor öðrum. The Expendables er mynd sem alla aðdáendur hasarmyndanna dreymdi um að sjá en trúðu aldrei að gæti orðið að veruleika.
The Expendables hefur vakið gríðarlega lukku meðal karlmanna sem hafa lengi þráð að sjá testósterónið flæða unnvörpum. Kvikmyndin virðist hafa uppfyllt allar þær óskir því The Expendables hefur fengið frábæra dóma og ótrúlega aðsókn. Leikarahópur The Expendables er einstakur og þótt margir hafi eingöngu látið sig dreyma um að sjá Arnold Schwarzenegger og Sylvester Stallone saman á hvíta tjaldinu þá efuðust flestir um að sá draumur yrði að veruleika. Sérstaklega eftir að sá fyrrnefndi tók við ríkisstjórastöðunni í Kaliforníu. En nú hefur draumurinn ræst, einhverjir tala um svipaðan menningarviðburð og þegar Al Pacino og Robert De Niro töluðu fyrst hvor við annan á hvíta tjaldinu í Heat. Þótt Adda Svakanagg og Sly Stallone bregði fyrir aðeins í stuttan tíma saman þá birtast hasarmyndastjörnurnar á færibandi í myndinni. Bruce Willis, sem fyrir löngu hefur sýnt að hann er snillingur í að drepa með sitt víðfræga glott að vopni, birtist í myndinni og ofurtöffarinn Mickey Rourke lætur sitt ekki eftir liggja. Þá má ekki gleyma Dolph Lundgren, Jet Li og Jason Statham sem stimplar sig endanlega inn í þennan sérstaka leikarahóp; að vera hasarmyndastjarna. Til gamans má svo geta að reynsluboltarnir í myndinni, Sly, Schwarzenegger og Lundgren skipa efstu sætin á hinum ýmsu listum internetsins yfir hvaða leikarar eigi flest morð á hvíta tjaldinu. Kannski kemur það á óvart að Lundgren er talinn vera sá sem hefur murkað lífið úr flestum en þær tölur voru reyndar gerðar fyrir síðustu Rambo-mynd. En þar náði tala látinna nýjum hæðum. Að kalla saman svona hasarmyndahóp er engin nýlunda þótt vissulega sé langt um liðið síðan karlpeningurinn fékk slíka snemmbúna jólagjöf. Á árunum 1960 til 1970 uppgötvuðu menn nefnilega að það væri markaður fyrir slíkar karlmennskumyndir. Fyrst reið á vaðið kúrekamyndin The Magnificent Seven með James Coburn, Charles Bronson og Steve McQueen. Myndin fór svo vel ofan í áhorfendur að The Great Escape var gerð aðeins þremur árum síðar; Coburn, Bronson og McQueen voru á sínum stað og seinni heimsstyrjöldin þótti tilvalin bakgrunnur fyrir hetjudáðir og hárbeittan húmor á kostnað nasista. Í kjölfarið komu áþekkar myndir á borð við The Dirty Dozen og Kelly's Hero, allt myndir þar sem nærvera aðal-harðhausa á borð við Clint Eastwood, Bronson og Coburn nægði. Velgengni The Expendables mun því að öllum líkindum hafa nokkur áhrif á kvikmyndagerð í Hollywood. Hugsanlega verður afturhvarf til stjörnumprýddra hasarmynda sjöunda áratugarins þar sem vöðvabúnt sýna áhorfendum hvernig eigi að sigrast á hinu illa í heiminum. Ef ekki, þá virðist myndin vera velheppnaður óður til hins hreinræktaða hasarmyndaforms.- fgg
Lífið Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Sjá meira