Gullspákaupmenn hegða sér eins og merðir á spítti 26. október 2010 13:37
Gulleignir fjárfesta og spákaupmanna eru orðnar á stærð við gullforða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Peter Warren forstjóri fjárfestingarsjóðsins Warren Capital segir að þetta sé staða sem geti skapað mikinn óróleika á markaðinum þar sem margir af spákaupmönnunum hegði sér eins og merðir á spítti. Fjallað er um málið á vefsíðunni e24.no. Þar segir að útreikningar Warren sýni að Bandaríkjamenn eigi enn mesta gullforða heimsins eða 8.100 tonn. Næst á eftir kemur Þýskaland með 3.400 tonn og þar næst Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn með 2.900 tonn. Spákaupmenn og fjárfestar eigi síðan samanlagt um 2.800 til 2.900 tonn af gulli. „Það er ekki gott að hafa svona órólega farþega með í bátnum," segir Warren. „Spákaupmennirnir hegða sér líkt og merðir á spítti. Slíka farþega viltu ekki hafa með í för." Warren Capital er einn þeirra sjóða sem veðjað hafa á verðhækkanir á gulli árum saman. Nú hefur Peter Warren losað sjóðinn úr öllum gullkaupum sínum þar sem hann telur bólu í myndun á gullmarkaðinum. Eins og kunnugt er af fréttum hefur heimsmarkaðsverð á gulli hækkað gífurlega á undanförnum mánuðum og árum. Verðið fór í 500 dollara á únsna árið 2005, náði 700 dollurum árið 2006 og fór í fyrsta sinn yfir 1.000 dollara árið 2008. Í þessum mánuði fór verðið í 1.386 dollara á únsuna.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira