Lífið

Amy og Blake til Jamaíka og Kúbu

Amy og Blake.
Amy og Blake.
Söngkonan Amy Winehouse og fyrrum eiginmaður hennar, Blake Fielder-Civil, eru tekin saman aftur. Vinir þeirra segja að þau ætli að gifta sig aftur á Jamaíka í næsta mánuði. Fyrst þarf hann að vísu að klára skilorð.

Amy og Blake giftust óvænt í Miami 2007 en honum var stungið í steininn fyrir líkamsárás nokkrum mánuðum seinna. Þau skildu svo í fyrra vegna framhjáhalds hennar.

Blake var sleppt úr steininum og sendur í meðferð fyrir nokkru. Amy hafði þá sjálf tekið sig saman í andlitinu og minnkað sukkið. Hún hafði samband og þau tóku saman á ný. Kúbverskir vindlar eru meðal sameiginlegra áhugamála þeirra um þessar stundir og ætla þau að fara saman til Kúbu eftir brúðkaupið og reykja þá fínustu sem eru í boði. Þá er Amy búin að panta málverk af þeim af listmálaranum Sam Shaker, sem segir þau afar ástfangin.


Tengdar fréttir

Amy og Blake aftur upp að altarinu

Amy Winehouse er að plana að giftast gamla kærastanum Blake Fielder-Civil á ný í Las Vegas. Turtildúfurnar voru gefnar saman í Miami árið 2007 en stuttu seinna var Blake handtekinn fyrir líkamsárás og dæmdur í 27 mánaða fangelsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×