Lífið

Velur mat eftir kynlífsvenjum dýranna - þolir ekki svín

Nicolas Cage Borðar ekki dýr sem stunda subbulegt kynlíf.
nordicphotos/getty
Nicolas Cage Borðar ekki dýr sem stunda subbulegt kynlíf. nordicphotos/getty

Hinn ástsæli leikari Nicolas Cage segist ekki neyta svína- eða nautakjöts en ástæða þess þykir mörgum heldur undarleg. Cage segist ekki borða svína- og nautakjöt því honum þyki þessi dýr stunda subbulegt kynlíf.

„Ég er heillaður af hvers kyns fiskum, fuglum, hvölum og skriðdýrum," sagði Cage.

„Ég vel hvaða mat ég borða eftir því hvernig kynlíf dýrin stunda. Mér finnst fiskar gera það mjög tignarlega, einnig fuglar. En ekki svín og þess vegna borða ég ekki svínakjöt," sagði leikarinn sem sló rækilega í gegn í kvikmyndinni Kick Ass.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×