Lífið

Bláhærð Lola

Breytir til Lourdes Leon, dóttur Madonnu, langar að lita hárið á sér dökkblátt.
nordicphotos/getty
Breytir til Lourdes Leon, dóttur Madonnu, langar að lita hárið á sér dökkblátt. nordicphotos/getty

Lourdes Leon, fjórtán ára gömul dóttir söngkonunnar Madonnu, er þegar farin að láta taka til sín innan tískuheimsins og hannaði meðal annars heila fatalínu ásamt móður sinni.

Stúlkan fékk leyfi til að lita á sér hárið í fyrsta sinn eftir fjórtán ára afmælisdaginn og nú virðist hún ekki geta hætt.

„Hárið á mér er mjög dökkt þessa dagana og ég er orðin þreytt á því og langar að lita það dökkblátt. Ég er samt viss um að ég muni einnig fá leið á þeim hárlit innan skamms. Ég sagði mömmu minni frá þessu og hún sat bara þögul og starði á mig án þess að sýna nokkur svipbrigði. Nú vitið þið hvað ég hef þurft að þola síðustu fjórtán árin," skrifaði stúlkan á bloggsíðu sína fyrir stuttu.

Madonna er sjálf þekkt fyrir að fara eigin leiðir þegar kemur að tísku og því á Lourdes ekki langt að sækja tískuáhugann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×