Lífið

Seth Rogen trúlofaður

trúlofuð Seth Rogen segir að unnustan Lauren Miller sé allt of sæt fyrir hann.
trúlofuð Seth Rogen segir að unnustan Lauren Miller sé allt of sæt fyrir hann.

Hinn bráðfyndni Seth Rogen og kærastan hans til sex ára, leikkonan Lauren Miller, trúlofuðu sig í síðustu viku. Eftir að Rogen fór á skeljarnar héldu þau til Boston þar sem þau fögnuðu í faðmi fjölskyldunnar.

Heimildarmaður tímaritsins Life & Style segir að Miller hafi verið farin að gefa upp vonina um að Rogen myndi setja hring á fingur hennar. „En fjölskylda hennar dáir hann og er mjög spennt fyrir því að skipuleggja brúðkaup," segir hann.

Rogen hefur lítið tjáð sig um einkalíf sitt en hefur engu að síður látið hafa eftir sér að hann eigi kærustu sem sé miklu sætari en hann eigi skilið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×