Kasi-Jesper ætlar líka í fótboltann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. september 2010 14:15 Jesper Nielsen. Nordic Photos / Getty Images
Jesper „Kasi" Nielsen hefur undanfarin ár látið til sín taka í heimi handboltans í Danmörku og Þýskalandi og stefnir nú að vinna sömu sigra í knattspyrnunni. Nielsen er nú aðaleigandi bæði AG Kaupmannahafnar og Rhein-Neckar Löwen en stefnan er að bæði þessi lið verði meðal sterkustu liða Evrópu á næstu árum. Í gær var Guðmundur Guðmundsson ráðinn sem þjálfari Rhein-Neckar Löwen en hann var fyrr á árinu ráðinn sem íþróttastjóri beggja liða. Samkvæmt dönskum fjölmiðlum hefur Nielsen nú hug á að byggja upp danskt knattspyrnustórveldi sem muni skáka FC Kaupmannahöfn. Nielsen er mikill stuðningsmaður Bröndby og var fyrirtæki hans á sínum tíma aðalstyrktaraðili félagsins. En hann ætlar nú að byggja upp stórveldi frá grunni, líkt og hann gerði með AG Kaupmannahöfn. „Við þurfum lið sem getur blandað sér í toppbaráttuna í 1. deildinni og treyst á að það eigi möguleika á að koma sér upp," segir Sören Colding, framkvæmdarstjóri AG, í samtali við danska fjölmiðla. „Við erum komnir nokkuð langt á leið í ferlinu. Við höfum fengið grænt ljós frá stjórninni í AG til að halda áfram." „Þegar við förum af stað með svona verkefni er það ljóst að við setjum okkur háleit markmið. Við leggjum líka mikið á okkur til að ná þeim. Í heimi knattspyrnunnar heitir það að komast í Evrópukeppnina og Meistaradeild Evrópu," sagði Colding.
Fótbolti Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Fleiri fréttir Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Stuðningsmannahópar Celtic vilja ekki fá Keane Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu HM-minning: Tapið sem fékk alla Brasilíu til að gráta og banna búninginn Sjá meira