Lífið

Hættir við Evróputúr en segir ekki hvers vegna

Hjónin Jack White og Karen Elson unnu saman að nýju plötunni. Þau segja hætt við tónleikana „vegna aðstæðna sem við ráðum ekkert við“.
Hjónin Jack White og Karen Elson unnu saman að nýju plötunni. Þau segja hætt við tónleikana „vegna aðstæðna sem við ráðum ekkert við“.

Karen Elson, eiginkona rokkarans Jacks White, hefur aflýst fyrirhugaðri tónleikaferð sinni um Evrópu.

Elson, sem starfaði sem fyrirsæta áður en hún skellti sér út í tónlistina, gekk að eiga rokkarann White árið 2005. Þau hafa unnið saman að tónlist hennar og White er upptökustjóri plötunnar The Ghost That Walks.

Ráðgert hafði verið að Elson léki á fyrstu tónleikunum í Berlín í næstu viku og síðan áttu nokkrir tónleikar að fylgja í kjölfarið. Talsmaður söngkonunnar segir að öllum tónleikum Elson hafi verið aflýst. Ekki fæst uppgefið hver ástæðan er.

Hér er myndband þar sem Karen flytur lagið The Ghost Who Walks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×