Chelsea að nálgast Yaya Toure Rafnar Orri Gunnarsson skrifar 22. maí 2010 14:00 Yaya Toure er mögulega á leið til Englands.
Yaya Toure, leikmaður Barcelona, virðist vera á leið frá Börsungum en hann hefur verið orðaður við Arsenal nýverið en nú virðist sem Chelsea ætli að krækja í leikmanninn. Toure spilaði lítið á tímabilinu sem er að ljúka og Pep Guardiola, þjálfari liðsins, kaus að nota frekar aðra leikmenn á miðjunni sem þýðir að Toure er ansi aftarlega í goggunarröðinni hjá þjálfaranum. „Ef að Chelsea vill fá Toure, af hverju ætti hann þá ekki að fara þangað?," sagði umboðsmaður hans við Daily Mirror. „Toure er búinn að spila lítið á þessu tímabili og Guardiola hefur kosið að nota aðra fram yfir hann og besta lausnin er sennilega að hann yfirgefi félagið. Hann hefur gert upp hug sinn og er 90% ákveðinn í því að fara frá Spáni," bætti umboðsmaður hans við. Yaya Toure var sagður hluti af samningstilboði Barcelona sem félagið átti að hafa gert í stjörnuleikmann Arsenal, Cesc Fabregas. „Hann er með góð laun hjá Barca en hann vill ekki þéna peninga og sofna á bekknum. Sumir leikmenn myndu sætta sig við slíkt en hann er ekki þannig gerður. Ef að hann yfirgefur Barcelona þá er ljóst að þeir átta sig á því hvað þeir voru að missa."
Spænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira