Sannur meistari sumarsmellanna 20. maí 2010 04:00 Bruckheimer og frú Kvikmyndir Bruckheimers hafa þénað yfir þúsund milljarða í miðasölu.
Nafn Jerry Bruckheimer er nátengt hugtakinu „sumarsmellur" enda virðist Hr. Hollywood hafa næmt auga og tilfinningu fyrir því hvað fjöldinn vill sjá. Nýjasta kvikmyndin frá Bruckheimer er Prince of Persia en allnokkrar fréttir hafa verið skrifaðar um þá kvikmynd sem skartar meðal annars Gísla Erni Garðarssyni í litlu hlutverki. Gísli fær að spreyta sig gegn mörgum af helstu stjörnum Hollywood, svo sem Jake Gyllenhaal, sem er frægastur fyrir leik sinn í Brokeback Mountain, Gemmu Arterton en hún er fyrrum Bond-pía og svo Ben Kingsley og Alfred Molina.Kettir og gígalóarBruckheimer er af þýskum gyðingaættum. Hann fæddist í Detroit og kláraði próf í sálfræði við Mumford-háskólann í Arizona. Hann sýndi sjónræna sviðinu mikinn áhuga og hafði myndavél meðferðis hvert sem hann fór. Bruckheimer sneri sér að auglýsingagerð strax eftir nám; fyrst í Detroit, svo í New York. Auglýsingarnar vöktu strax mikla athygli, sópuðu að sér verðlaunum og opnuðu dyr Bruckheimer inn í Hollywood. En það var ekki fyrr en Bruckheimer komst í kynni við Paul Schrader að hjólin fóru að snúast fyrir alvöru. Kvikmyndirnar American Gigalo og Cat People urðu til þess að stóru fiskarnir veittu framleiðandanum athygli.Stjörnulíf með SimpsonBruckheimer komst í kynni við annan framleiðanda að nafni Don Simpson. Þeir tveir voru jafn ólíkir og dagur og nótt; Bruckheimer er jarðbundinn að eðlisfari á meðan Simpson lifði glamúrlífinu með tilheyrandi vímuefnaneyslu Afraksturinn var hins vegar ekkert slor; dansmyndin Flashdance skilaði þeim félögum 95 milljónum dollara í miðasölu að ekki sé minnst á Beverly Hills Cop-myndirnar sem gerðu Eddie Murphy að stórstjörnu og Top Gun. Líferni Simpson dró hann til dauða árið 1996 en síðasta myndin þeirra var The Rock.StórlaxinnBruckheimer missti örlítið taktinn eftir andlát Simpson. Armageddon, Gone in Sixty Seconds og hin arfaslaka Coyote Ugly voru ekki alveg í samræmi við væntingarnar sem Brukheimer/Simpson-samstarfið hafði alið áhorfendur á. Raunar var það ekki fyrr en með hinni frábæru stríðsmynd Ridley Scott, Black Hawk Down, að Bruckheimer náði sér almennilega á strik aftur. Kvikmyndagagnrýnendur hafa ekki alltaf verið hrifnir af kvikmyndum úr smiðju framleiðandans og þær fá seint þann stimpil að teljast listrænt augnakonfekt. En þegar Bruckheimer er upp á sitt besta skila myndirnar því sem til þeirra er ætlast. Einfaldasta útskýringin á Bruckheimer-myndum væri að þetta sé kvikmyndagerð fyrir fólk sem vill fá sér stóran poka af poppi, risakók og sjá tvo tíma af hreinu fjöri. Og framleiðandi sem hefur gert stórstjörnur úr leikurum á borð við Richard Gere, Tom Cruise, Nicolas Cage og Eddie Murphy og halað inn þrettán milljörðum dollara, tæplega tveim þúsund milljörðum íslenskra í miðasölu, hefur, burtséð frá öllu tali um list, skilið eftir sig spor í kvikmyndasögu Bandaríkjanna. freyrgigja@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira