French Connection tapaði 2,7 milljörðum í fyrra 18. mars 2009 11:24
Verslanakeðjan French Connection sem Baugur á 20% hlut í tapaði 17,4 milljónum punda fyrir skatt eða rúmlega 2,7 milljörðum kr. Árið 2007 varð hinsvegar 3,1 milljón punda hagnaður af rekstrinum. Í frétt um málið í blaðinu Times er haft eftir Stephan Marks að niðurstaðan á uppgjöri ársins valdi vonbrigðum en endurspegli erfiðleikana sem við er að glíma í fjármálakreppunni. Og Marks bætti við að þetta ár verði einnig erfitt fyrir reksturinn. Mesta tapið hjá French Connection varð í Bandaríkjunum þar sem niðursveiflan í verslunargeiranum varð enn meiri en í Bretlandi. Salan vestanhafs minnkaði um 3% og þá einkum á seinnihluta ársins. Í framhaldi af þessu hefur markaðsvirði starfsemi French Connection í Bandaríkjunum verið færð niður um tæplega 11 milljón dollara eða um 1,4 milljarða kr. Salan í Bretlandi og Evrópu jókst hinsvegar um 2% á síðasta ári.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira