Viðskipti erlent

Lokað fyrir Straum í norrænum kauphöllunum

Lokað var fyrir viðskipti með hluti í Straumi í kauphöllunum í Kaupmannahöfn, Osló og Helsinki í morgun.

Hlutir í Straumi voru teknir úr viðskiptunum í þessum kauphöllum fyrir opnun í morgun eftir að Straumur tilkynnti að hætta væri á að bankinn gæti ekki uppfyllt skilyrðin fyrir veru sinni í Norex kauphallarsamstarfinu.

Eins og kunnugt er yfirtók Fjármálaráðuneytið rekstur Straums í morgun og mun skipa skilanefnd til að annast reksturinn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×