Kröfur í þrotabú Glitnir Privatökonomi nema 700 milljónum 24. mars 2009 09:56
Kröfur í þrotabú fyrrum fjármálaþjónustu Glitnis í Noregi, Glitnir Privatökonomi, nema nú yfir 40 milljónum norskra kr. eða yfir 700 milljónum kr. Samkvæmt frétt um málið á vefsíðunni e24.no skiptast kröfurnar þannig að yfir 30 milljónir norskra kr. eru skaðabótakröfur frá óánægðum viðskiptavinum vegna lélegrar fjármálaráðgjafar og um 10 milljónir norskra kr. eru vegna lána frá eigendum Glitnir Privatökonomi en félagið hefur skipt um nafn og eigendur tvisvar síðan það komst í þrot í fyrra haust. Síðasta föstudag var haldinn fyrsti skitpafundurinn í Kapitalhuset en það var síðasta nafnið á fjármálaþjónustunni þegar hún var tekin til gjaldþrotaskipta eftir áramótin. Í umfjöllun e24.no um helgina kom fram að Neytendastofa Noregs taldi að Glitnir Privatökonomi væri versta dæmið sem til væri í Noregi um villandi og misvísandi fjármálaráðgjöf þar sem áherslan var lögð á sölu eigin fjármálagerninga en ekki að liðsinna viðskiptavininum sem best eftir hans eigin þörfum. Skiptastjórinn, Arne V. Njöten, segir að enn sé of snemmt að segja til um hvernig þrotabúið muni meðhöndla þær kröfur sem borist hafa.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira