Tchenguiz í vandræðum með hótelkeðju 15. febrúar 2009 08:33 Robert Tchenguiz
Menzies-hótelkeðjan, sem er í eigu íranska Íslandsvinarins Robert Tchenguiz, rambar nú á barmi gjaldþrots. Hótelkeðjan þarf að endursemja um lán sín eftir að hafa brotið lánaskilmála. Þetta kemur fram í The Sunday Times í dag. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Tchenguiz sem hefur þurft að horfa upp á viðskiptaveldi sitt molna í sundur að undanförnu. Tchenguiz, sem hefur verið mikið í fréttum hér á Íslandi vegna óvenjulegrar lánafyrirgreiðslu sem hann naut af hálfu Kaupþings, þarf væntanlega að greiða allt að fimm milljónir punda, um 850 milljónir íslenskra króna, í reiðufé til að koma hótelkeðjunni til bjargar. Hann keypti Menzies á 180 milljónir punda, 30 milljarða íslenskra króna, undir lok ársins 2006 og yfirtók þá skuldir upp á rúma 38 milljarða frá HBOS-bankanum.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira