Bill Clinton vinur og ráðgjafi nýs eigenda að Eimskip 1. júlí 2009 08:39 Ron og Bill á góðri stundu.
Bill Clinton fyrrum forseti Bandaríkjanna var einn af nánustu vinum og ráðgjöfum Ronald Burkle sem á eignarhaldsfélagið Yucaipa Companies sem nú eignast 32% í nýju Eimskipi. Raunar hefur Hillary Clinton einnig verið á mála hjá Burkle. Samkvæmt úttekt í tímaritinu Forbes um Burkle er hann sagður einn af öflugustu fjáröflunarmönnum Demókrataflokksins í Bandaríkjunum og það var í gegnum það starf sem hann kynntist Clinton hjónunum. Samkvæmt skattskýrslu Bill Clinton námu greiðslur Yucaipa Companies til forsetans fyrrverandi 12,5 milljónum dollara, eða 1,6 milljarði kr. á árabilinu 2003 til 2006. Samkvæmt uppgjöri úr kosningabaráttunni um forsetaframboð Hillary Clinton árið 2007 námu greiðslur Yucaipa til hennar árið 2007 um 2,5 milljónum dollara. Þá telst Burkle einnig til vinahóps Al Gore. Hann aðstoðaði Al Gore við kaup á sjónvarpsstöð í Kanada eftir að Gore tapaði forsetakosningunum 2004. Lagði hann til 30 milljónir dollara í kaupin en talið er að sú fjárfesting hafi tífaldast í verðmæti síðan. Yucaipa Companies var stofnað af Burkle árið 1986, er staðsett í Los Angeles og hefur síðan náð miklum árangri í skuldsettum yfirtökum á stórmörkuðum og dagvöruverslunum. Á síðustu árum hefur sjóðurinn þannig eignast Wild Oats Markets í Colorado, Pathmark Stores í New Jersey og Supervalu í Minnesota svo dæmi sé nefnd. Sjálfur er Burkle sonur verslunareigenda í Kaliforníu. Hann hætti í skóla á unglingsárunum og vann síðan í 15 ár í verslun föðurs síns og félagsins sem átti hana. Árið 1981 reyndi hann að yfirtaka félagið en sú yfirtaka klúðraðist. Síðan hefur leiðin legið upp á við og telur Forbes að persónuega auðæfi Burkle, sem er 58 ára gamall, vera um 2,5 milljarða dollara eða um 317 milljarða kr.Burkle á hóp af þekktum vinum í Bandaríkjunum. Sem dæmi ná nefna að hann setti 50 milljónir dollara inn í félag Sean (Diddy) Combs er það var stofnað og eitt sinn leigði hann deildi hann íbúð í New York með Leonardo DiCaprio.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira