Ólöglegar vörueftirlíkingar flæða yfir Evrópu 9. júlí 2009 15:07
Falskar sígarettur, ónothæfar viagra pillur, merkjavörur í ódýrum eftirlíkingum, sjóræningja CD og DVD diskar. Ólöglegar vörueftirlíkingar flæða yfir Evrópu sem aldrei fyrr. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu framkvæmdanefndar Evrópusambandsins um vörueftirlíkingar sem hald var lagt á innan landamæra ESB á síðasta ári. Aukningin á þessum innflutningi hefur tvöfaldast. Í fyrra var verðmæti þeirra vara sem tollyfirvöld gerðu upptækar um 4,2 milljarðar kr. Hafði upphæðin tvöfaldast miðað við árið á undan. Þegar litið er á tölfræði frá tollembættum landa innan ESB yfir fjölda mála þar sem ólöglegar vörueftirlíkingar koma við sögu sést að slík mál voru tæplega 5.000 talsins árið 1999. Í fyrra voru þau orðin samtals 49.000 talsins. Í umfjöllun um málið í Jyllands Posten kemur fram að ólöglegar vörueftirlíkingar ná einkum til CD og DVD diska og sígaretta. En eftirlíkingar af fötum, leikföngum, snyrtivörum, skartgripum, rafmagnstækjum og lyfjum eru einnig algengar. Hvað lyfin varðar eru eftirlíkingar a viagra efst á listanum. Þessar vörueftirlíkingar koma að stærstum hluta frá Kína eða 54% af heildarmagninu. Og mest af þeim næst í Rotterdam enda er þar að finna eina stærstu gámahöfn í Evrópu.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira