Suður Kórea eignast sinn fyrsta geimfara 8. apríl 2008 07:40
Suður-Kórea eignast sinn fyrsta geimfara í dag. Þá verður hinni 29 árs gömlu Yi So skotið á loft í Soyuz geimfari á leið til alþjóðlegu geimstöðvarinnar Yi So er verkfræðingur að mennt og hún var valin úr hópi 36.000 umsækjenda til að taka þátt í þessari sögulegu geimferð. Raunar var hún varamaður í byrjun fyrir ferðina en sá sem átti að fara, Ko San, var dæmdur úr leik vegna brots á reglum í þjálfunarmiðstöð fyrir ferðina. Soyuz-eldflauginni verður skotið á loft frá geimmiðstöðinni í Kazakhstan nú klukkan sextán mínútur yfir ellefu. Með Yi So í ferðinni verða tveir rússneskir geimfarar. Yi So mun dvelja 10 daga um borð í alþjóðlegu geimstöðinni og vinna að ýmsum vísindatilraunum þar. Á blaðamannafundi fyrir ferðina var Yi So spurð að því hvað væri það fyrsta sem hún ætlaði að gera þegar hún kæmi um borð í geimstöðina. Hún svaraðui því til að fyrst af öllu ætlaði hún að hrópa vááá. Hún sagði síðan að hún vonaðist til að geimferð hennar myndi hjálpa til við að liðka samskiptin milli Suður og Norður Kóreu og að í framtíðinni yrði öll kóreanska þjóðin í sameiningu hamingjusöm með ferð hennar.
Vísindi Mest lesið Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Hækka þurfi veiðigjald í skrefum Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Sjá meira