Textahöfundur ársins 7. mars 2008 11:28
Bergur Ebbi Benediktsson (Sprengjuhöllinni) Bergi tekst á einstakan hátt að fanga tíðarandann í íslensku samfélagi með hversdagslegu og hnyttnu orðfæri. Honum liggur margt á hjarta og textarnir eru því oft mikill orðaflaumur í stað hefðbundinna kvæða. Bergur er beinskeittur og mælir fyrir munn sinnar kynslóðar, á hennar tíma - nákvæmlega í nútíðinni. Megas Megas er með lærðustu mönnum í kveðskap á Íslandi, en það nægir þó ekki til að búa til góða dægurlagatexta. Megas hefur aldrei setið fastur í reglum heldur bætir stöðugt við gamlan arf okkar með tilraunum og frumleika. Hann hefur verið sjálfkjörinn í textahöfundaútnefningarflokkinn allt frá því að fyrsta platan hans kom út og er svo enn, næstum fjórum áratugum síðar. Þorsteinn Einarsson (Hjálmum) Það eru fáir textahöfundar af ungu kynslóðinni sem leyfa sér að vera með meiningar, vera pólitískir og áleitnir. Textar Þorsteins endurspegla hugsjónamanninn, þeir eru gagnrýnir en afar ljóðrænir í senn. Honum tekst að yrkja falleg ljóð til náttúrunnar og lítilmagnans án þess að gerast klisjukenndur. Kveðskapur hans er tímalaus.
Íslensku tónlistarverðlaunin Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira