Þverpólitísk áfallahjálp 8. febrúar 2008 10:46 Borgarfulltrúar hafi lokið við rannsókn á eigin afglöpum. Það, út af fyrir sig, er athyglisvert. Í meira lagi. REI-skýrslan er þverpólitísk áfallahjálp. Hún er plástur á sárin, einhvers konar rifrildi til að þerra tárin. Í skýrslunni kemur fram, sem vitað var, að borgarfulltrúar ... ... fóru ekki að reglum. ... fóru ekki að góðum stjórnsýsluháttum. ... fóru leynt með samninga. ... fóru fram úr lýðræðislegu umboði sínu. ... fóru á taugum. Það getur verið gaman að leika sér að annarra manna peningum. Komast í hóp útvalinna efnamanna án þess að eiga efni á því. Og það getur líka verið gaman að gerast kóngur um stund - og einráður í svo sem eins og einhverja daga. Með böns af monní, eins og Megas myndi orða það. Niðurstaða skýrslunnar er á að giska mögnuð; menn skuli læra af óförum sínum. Í niðurstöðunni eru settar fram átta hugmyndir um hvernig menn geta lært af eigin mistökum. Sjálfir skýrsluhöfundarnir ætla sumsé að taka sig á. Já, taka sér tak. Það er gott að vera dómari í sjálfs sín sök. Og sitja sem fastast. Læra það eitt af mistökum sínum að pólitísk ábyrgð er óræð. Hún er alltaf óræð. Átakanlegast í þessu máli öllu er að sjá kjörna stjórnmálamenn skjögra eins og illa spikaðan kött í kringum heitan grautinn í allri umræðunni um blessaða ábyrgðina. Á máli stjórnmálamanna heitir þetta að allt heila ákvarðanaferlið sé óljóst. Á mannamáli kallast þetta að koma málum svo fyrir að enginn sé fær um að benda á þann seka. Já, borgarstjórn hefur ekki umboð til að refsa sjálfri sér. Umboðið er jú sem fyrr hjá kjósendum sem geta gleymt þessu næstu misserin. Allir vita að REI-málið er stjórnsýslulegt og pólitískt klúður frá upphafi til enda. Allir vita jafnframt að það eru og verða stjórnmálin, miklu fremur en stjórnmálamenn, sem bíða skaðann af allri vitleysunni. Svo einföld eru íslensk stjórnmál. Svo hrikalega einföld ... -SER. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mannamál Sigmundar Ernis Mest lesið Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun