Áður óþekktir hlutar Merkúrs opinberast Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. október 2008 08:13 Hluti af yfirborði Merkúrs. MYND/NASA
Vísindamenn hjá NASA hafa skoðað 95 prósent af yfirborði Merkúrs með aðstoð könnunarfarsins Messenger sem nýlega flaug hjá reikistjörnunni og fer að líkindum á sporbaug um hana árið 2011. Myndirnar frá Messenger hafa varpað ljósi á áður huldar lendur þessarar innstu og minnstu reikistjörnu sólkerfisins og segir Sean Solomon, stjórnandi verkefnisins, að þar á meðal séu um 30 hundraðshlutar yfirborðsins sem mannsaugað hafi aldrei áður séð með neinu móti. Hann segir Merkúr að mörgu leyti ólíkan Mars og tunglinu, á Merkúr séu fleiri og stærri gígar auk þess sem mjög stórir hlutar hans hafi ekki tekið neinum breytingum í geysilangan tíma, svo sem vegna jarðhræringa eða loftsteinahraps. Frá þessu séu þó undantekningar því á nokkrum hásléttum Merkúrs séu virk eldfjöll sem breyti reglulega um svip. Reglulega í augum vísindamanna NASA getur þó hæglega vísað til þess að eitthvað hafi síðast hreyfst þar löngu fyrir Krists burð. Myndataka með þrívíddartækni gerir vísindamönnunum kleift að greina yfirborð Merkúrs á mun nákvæmari hátt en nokkurn tímann áður hefur verið unnt svo þeim hjá NASA leiðist ekkert í vinnunni þessa dagana.
Vísindi Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Sjá meira