Erlendir nafnar Lay Low 10. nóvember 2008 06:00 Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir kallar sig Lay Low. Nýjasta plata hennar, Farewell Good Night´s Sleep, hefur fengið mjög góðar viðtökur. MYND/Örlygur Hnefill
Lay Low er án efa einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag, auk þess sem erlendir útgefendur slást um krafta hennar. Hún er þó ekki sú eina sem ber þetta sérstæða listamannsnafn því hún á sér að minnsta kosti fjóra nafna úr tónlistarbransaum vestanhafs. Fyrstan ber að nefna alnafna hennar, Lay Low, bófarappara frá Tennessee í suðurríkjum Bandaríkjanna. Lay Low, sem kallar sig einnig Maxmilien, tók upp nafn sitt til heiðurs rapparanum LL Cool J og notaði þar L-in tvö til að skapa nafnið Lay Low. Ferill hans hófst árið 1995 og vakti hann nokkra athygli á heimaslóðum með sveitinni Guillotine. Eftir það hóf hann sólóferil og reynir hann nú hvað hann getur til að ná eyrum sem flestra.Harðkjarni og popplay low Rapparinn Lay Low frá Tennessee í Nashville tók upp nafn sitt til heiðurs LL Cool J.Hljómsveitin Lay Low er svo harðkjarnasveit frá Flórída í Bandaríkjunum og Lay Low, Aim High, er poppsveit frá Ottawa í Kanada. Báðar eru þær án útgáfusamnings. Loks má nefna Lay Low Kennels, bandarískan rappara, hvítan á hörund, sem einnig er lítið peð í hörðum heimi tónlistarbransans. Lay Low Music, plötufyrirtækið, er jafnframt til staðar og einbeitir það sér að útgáfu bandarískrar hiphop-tónlistar. Slái maður nafnið Lay Low inn á Wikipedia.com kemur þó í ljós að okkar íslenska Lay Low er sú eina sem kemur upp og hlýtur það að segja eitthvað um stöðu hennar á meðal misefnilegra nafna sinna í tónlistarbransanum. Nafnið ákveðið í bríaríilay low Bandaríska harðkjarnasveitin Lay Low er án útgáfusamnings og reynir hvað hún getur að ná athygli almennings.Kári Sturluson, umboðsmaður Lay Low, kannast vel við erlenda nafna hennar, sérstaklega þó hinn bandaríska Lay Low frá Tennessee. Hann segist þó aldrei hafa haft samband við þessa aðila og þeir ekki lagt fram neinar athugasemdir við hann, „enda engin ástæða til“. Að sögn Kára var nafnið Lay Low valið í einhverju bríaríi. „Það vantaði á sínum tíma eitthvað nafn og það var eiginlega engin hugsun á bak við þetta. Þetta er eitthvað sem hún skaut fram,“ segir hann.freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira