Áhugastjörnufræðingur í ljósmyndasamkeppni við NASA Atli Steinn Guðmundsson skrifar 27. nóvember 2008 08:22 MYND/Barcroft Media
Breskur áhugastjörnufræðingur náði myndum úr bakgarðinum heima hjá sér sem gefa myndum NASA ekkert eftir í gæðum. Margir húsbændur á sextugsaldri dunda sér við annað í garðinum sínum en að mæna á stjörnurnar. Greg Parker í New Forest á Suður-Englandi er ekki einn af þeim. Í stað þess að kantskera, slá og vökva hefur Parker komið sér upp stjörnurannsóknarstöð í bakgarðinum með öflugum sjónauka og öllu tilheyrandi. Gegnum þennan sjónauka hefur honum svo ofan á allt saman auðnast að ná myndum af stjörnuþyrpingu í 12 milljarða ljósára fjarlægð sem þykja svo skýrar að þær hafa verið birtar í nýrri bók stjörnuljósmyndasérfræðingsins Noels Carboni í Flórída. Sjálfur er Parker prófessor í verkfræði og hefur lengi haft stjörnuskoðun og -rannsóknir sem áhugamál. Myndir Parkers þykja jafnast fullkomlega á við sumar þeirra mynda sem bandaríska geimferðastofnunin NASA hefur náð gegnum sína sjónauka en hann beitir hárnákvæmum aðferðum sem felast í því að taka myndirnar á löngum tíma svo ljósið frá stjörnunum nái að stimpla sig inn á filmuna. Til þess kælir hann myndavélina niður en hún er sérútbúin til stjörnuljósmyndunar. Parker var til dæmis meira en 40 klukkustundir að mynda vetrarbrautina Andrómedu en hún er „ekki nema" í 2,2 milljóna ljósára fjarlægð og það kallar Parker nú bara dagsferð.
Vísindi Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira