Heinze: Ronaldo yrði betri á Spáni 29. október 2008 12:53 Heinze og Ferguson áttu ekki í skap saman NordicPhotos/GettyImages
Gabriel Heinze, fyrrum leikmaður Manchester United, segir af og frá að hann hafi verið keyptur af Real Madrid til þess eins að hjálpa til við að lokka Cristiano Ronaldo til Spánar. Sir Alex Ferguson hélt þessu fram í viðtali við GQ og frá því var greint í frétt hér á Vísi í gær. Heinze vísar þessum ummælum Ferguson á bug. "Kenning Ferguson um að ég hafi bara farið til Real til að greiða fyrir komu Cristiano Ronaldo er algjör tilbúningur," sagði Heinze í samtali við Daily Mail í dag. "Ég er góður vinur Ronaldo en hann er fullfær um að taka sínar ákvarðanir sjálfur. Ef hann hefði spurt mig um Real hefði ég sagt honum mína skoðun en ég er ekki að reyna að hafa slæm áhrif á hann. Ég veit ekki af hverju Ferguson er að tala um mig - ég hélt að hann væri búinn að gleyma mér," sagði Argentínumaðurinn. "Ferguson ræður öllu hjá United og ef menn mótmæla honum eru þeir settir út í kuldann. Ég átti í vandræðum vegna þessa þegar ég var hjá United, en Ferguson getur ekki sagt mér hvað ég má segja eftir að ég fór frá félaginu," sagði Heinze og fullyrti að Ronaldo yrði betri á Spáni. "Ég er reyndar viss um að Ronaldo myndi spila enn betur hjá Real en hann hefur gert hjá United. Það er mín skoðun og það er bara eðlilegt að ég hafi viljað að hann kæmi hingað og spilaði á Spáni."
Spænski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Sjá meira