Birgir Leifur Hafþórsson er meðal efstu manna á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðin á Spáni en hann lék á tveimur höggum undir pari vallarins í dag.
Samtals er hann á þremur undir pari eftir fyrstu tvo keppnisdagana og stendur vel að vígi fyrir framhaldið. Þrjátíu efstu kylfingarnir tryggja sér á endanum þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári.
Birgir Leifur lék í dag á nýja vellinum á svæði San Roque-klúbbsins á Spáni en hann keppti á eldri vellinum í gær.
10.40
Hann fékk örn strax á annarri braut sem er næstlengsta braut vallarins. Hann fór inn á flöt í tveimur höggum og setti niður laglegt pútt í kjölfarið. Er í 7.-15. sæti sem stendur.
10.55
Birgir Leifur fékk fyrsta skolla dagsins á fjórðu holu. Rétt missti af parinu.
10.58
Öruggt par á fimmtu braut.
11.25
Birgir Leifur nældi sér í fugl á sjöttu braut og er nú á samtals þremur höggum undir pari. Sem stendur er hann í 6.-17. sæti á mótinu.
12.12
Annar fugl kom í kjölfarið á sjöundu braut og svo lék hann áttundu og níundu braut á pari. Frábær árangur hjá Birgi Leif sem situr í 3.-7. sæti sem stendur.
12.28
Birgir Leifur byrjaði seinni níu með því að leika tíundu brautina á einu höggi yfir pari.
12.45
Birgir Leifur var nálægt því að ná fugli á elleftu braut en varð að sætta sig við par.
13.01
Par á tólftu braut og Birgir Leifur heldur sínu striki. Hann er sem stendur í 8.-15. sæti.
13.12
Stysta braut vallarins og átti Birgir Leifur ágætan möguleika á fugli en fékk þess í stað öruggt par.
13.26
Fjórða parið í röð hjá Birgi Leifi er staðreynd. Hann heldur sínu striki.
13.51
Birgir Leifur reddaði pari á fimmtándu holu eftir að hafa lent í hremmingum á brautinni. Hann er sem stendur í 11.-16. sæti.
14.11
Sjötta parið í röð komið hjá Birgi Leifi á stuttri par fimm braut.
14.26
Nú er aðeins ein braut eftir en Birgir Leifur náði pari á þeirri sautjándu. Um er að ræða par 3 holu en Birgir Leifur hefur áður fengið skolla og par á slíkum holum.
14.39
Birgir Leifur hefur lokið keppni á tveimur undir pari eftir að hafa fengið par á síðustu holunni, sitt áttunda par í röð. Sem stendur er hann í 13.-17. sæti en einhverjir kylfingar eiga eftir að koma í hús sem gæti breytt lokastöðu dagsins.
Fylgst var með gangi mála, holu fyrir holu, á kylfingur.is.
Annar keppnisdagur: 2 undir pari
1. braut: Par 4 (407 metrar) - 4 högg (par)
2. braut: Par 5 (503 metrar) - 3 högg (örn)
3. braut: Par 4 (339 metrar) - 4 högg (par)
4. braut: Par 3 (177 metrar) - 4 högg (skolli)
5. braut: Par 4 (346 metrar) - 4 högg (par)
6. braut: Par 4 (331 metri) - 3 högg (fugl)
7. braut: Par 5 (523 metrar) - 4 högg (fugl)
8. braut: Par 3 (205 metrar) - 3 högg (par)
9. braut: Par 4 (395 metrar) - 4 högg (par)
Fyrri níu: (Par 36) 33 högg, þremur höggum undir pari.
10. braut: Par 4 (341 metri) - 5 högg (skolli)
11. braut: Par 5 (565 metrar) - 5 högg (par)
12. braut: Par 4 (311 metrar) - 4 högg (par)
13. braut: Par 3 (167 metrar) - 3 högg (par)
14. braut: Par 4 (416 metrar) - 4 högg (par)
15. braut: Par 4 (417 metrar) - 4 högg (par)
16. braut: Par 5 (457 metrar) - 5 högg (par)
17. braut: Par 3 (196 metrar) - 3 högg (par)
18. braut: Par 4 (414 metrar) - 4 högg (par)
Seinni níu: (Par 36) 37 högg, einu höggi yfir pari
Fyrsti keppnisdagur: 71 högg (einn undir pari vallarins)
Samtals: Þrír undir pari (13.-17. sæti)
Alls hófu 156 kylfingar leik í gær en þeir sem lenda í efstu 30 sætunum eftir sex hringi fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári.