Nasdaq kaupir OMX-samstæðuna 20. september 2007 10:35 Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq, sem situr ein að tilboði í OMX-kauphallarsamstæðuna. Mynd/AFP
Nasdaq hefur gert samkomulag við kauphöllina í Dubaí sem felur í sér að Nasdaq kaupir samnorrænu OMX-kauphallarsamstæðuna. Kauphöllin í Dubaí mun eiga fimmtung í sameinuðum kauphöllum auk þess að fá 28 prósenta hlut Nasdaq í bresku kauphöllinni í Lundúnum (LSE). Lokað var fyrir viðskipti með bréf í OMX í gær. OMX-samstæðan rekur kauphallir víða á Norðurlöndunum, þar á meðal hér, og í Eystrasaltsríkjunum. Kauphöllin í Ósló í Noregi heyrir hins vegar ekki undir OMX-samstæðuna. Tilboð Nasdaq í OMX hljóðar upp á 3,7 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði rúma 230 milljarða íslenskra króna. Tilboð kauphallarinnar í Dubaí var hins vegar þrjú hundruð milljónum dölum hærra í heildina. Hluthafar og eftirlitsstofnanir í bæði Evrópu og Bandaríkjunum eiga eftir að samþykkja samkomulagið, að sögn breska ríkisútvarpsins.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira