Olíuverð ekki hærra á árinu 6. júlí 2007 11:00 Olíuvinnslustöð. Skærur við olíuvinnslustöðvar í Nígeríu og mikil eftirspurn eftir eldsneyti í Bandaríkjunum hefur valdið verðhækkunum á hráolíu.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði á helstu fjármálamörkuðum í dag vegna óeirða við olíuvinnslustöðvar í Nígeríu í vikunni. Olíuverðið stendur í rúmum 75 dölum á tunnu og hefur ekki verið hærra síðan í ágúst í fyrra en þá var það nýkomið úr methæðum. Greinendur gera ráð fyrir frekari hækkunum. Olíuverðið tók kipp um miðjan júlí í fyrra eftir að Ísraelsher réðst inn í Suður-Líbanon. Það fór hæst í 78,48 dali á tunnu og sat við það verðbil þar til vopnahléi var komið á í ágúst. Þá hefur lítið framboð á markaði í Bandaríkjunum og mikil eftirspurn eftir eldsneyti vestanhafs nú þegar sumarið er hafið ýtt verðinu upp. Þrátt fyrir að greinendur telji að olíuverðið geti hækkað á næstunni telja þeir að eitthvað muni draga úr eftirspurn eftir eldsneyti í Bandaríkjunum þar eð hámarkinu sé iðulega náð á Þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4. júlí, sem var á miðvikudag. Árásir skæruliða á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu hafa komið illa við olíuframleiðslu í landinu en vinnsla þar í landi hefur dregist saman um fjórðung.Verð á Brent Norðursjávarolíu hækkaði um 28 sent á markaði í Lundúnum í morgun og fór í 75,10 dali á tunnu. Verð á framvirkum samningu með Norðursjávarolíuna hækkaði hins vegar talsvert og fór í 75,21 dal á tunnu.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira