Bandaríkjamenn hunsuðu Breta í grundvallarákvörðunum Óli Tynes skrifar 2. maí 2007 13:54 Bretar vildu að íraski herinn tæki við öryggisgæslu í landinu. MYND/AP
Bretar voru algerlega á móti því að leysa upp íraska herinn og reka opinbera starfsmenn úr embætti. Bandaríkjamenn hunsuðu hinsvegar þessar skoðanir. Breta grunar að Dick Cheney, varaforseti hafi staðið á bak við það. Fyrrverandi varnarmálaráðherra Bretlands segir að þeir hafi verið furðu lostnir yfir sumum ákvörðunum Bandaríkjamanna. Það er nokkuð samdóma álit fréttaskýrenda í dag að það hafi ekki verið skynsamlegt að reka 350 þúsund vopnaða íraska hermenn heim til sín og setja þá á atvinnuleysisskrá. Það gerðu Bandaríkjamenn árið 2003. Síðan hefur ofbeldi farið sívaxandi. Bretar vildu endurþjálfa íraska herinn og láta hann taka við öryggisgæslu í landinu. Bandaríkjamenn ráku sömuleiðis alla opinbera starfsmenn sem voru í Baath flokki Saddams Hussein. Við það hrundu innviðir embættismannakerfisins, með fyrirsjáanlegum afleiðingum. Geoffrey Hoon, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bretlands segir í viðtali við breska blaðið Guardian í dag að bresk stjórnvöld hafi anmælt þessum fyrirætlunum harðlega, en ekki haft erindi sem erfiði. Hoon segir að Tony Blair hafi talað við Bush, sjálfur hafi hann talað við Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra og Jack Straw, utanríkisráðherra hafi talað við Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Svo hafi komið allt önnur ákvörðun en talað hafi verið um. "Við spurðum sjálfa okkur hverju við hefðum eiginlega gleymt," segir Hoon í viðtalinu. "Ég held að við höfum gleymt Dick Cheney."
Erlent Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira