Verður að una niðurstöðu kjörnefndar Jónas Haraldsson skrifar 3. apríl 2007 10:07 Abubakar sést hér veifa til stuðningsmanna sinna á kosningafundi þann 20. desember á síðasta ári. MYND/AFP
Áfrýjunardómstóll í Nígeríu úrskurðaði í morgun að kjörnefndin sem hefur umsjón með forsetakosningunum hafi vald til þess að fjarlægja frambjóðendur af framboðsskrá. Úrskurðurinn þýðir að kjörnefndin hafði fullan rétt til þess að taka varaforseta landsins, Atiku Abubakar, af lista frambjóðenda en hann hefur verið ákærður fyrir fjársvik. Abubakar skipti um stjórnmálaflokk á síðasta ári og vildi forseti landsins þá meina að hann hefði sagt af sér embætti og lýsti því yfir að Abubakar væri ekki lengur varaforseti. Dómstóll setti Abubakar hins vegar aftur í embætti og ætlaði hann sér að verða frambjóðandi stjórnarandstöðuflokks í komandi forsetakosningum. Kjörnefndin dæmdi þá Abubakar úr leik þar sem hann hefur verið kærður fyrir fjársvik. Abubakar sagði enga lagalega heimild fyrir því að taka nafn hans af lista yfir frambjóðendur og vísaði úrskurði kjörnefndar til áfrýjunardómstóls sem síðan skilaði af sér niðurstöðu í dag. Niðurstaðan varð Abubakar í óhag og svo virðist sem forsetadraumar hans séu á enda.
Erlent Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira