Tíu ára fangelsi fyrir að móðga kónginn 29. mars 2007 21:19 Oliver Jufer á leið úr réttarsalnum í dag. MYND/AFP
Svissneskur maður var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að móðga konung Taílands. Oliver Jufer, 57 ára, var dæmdur fyrir að hafa eyðilagt fimm myndir af konunginum með því að spreyja á þær. Jufer var fullur þegar hann spreyjaði á myndirnar. Jufer átti yfir höfði sér allt að 75 ára fangelsi en dómurinn var 20 ár. Hann var síðan styttur um helming þar sem Jufer játaði brot sín. Dómarinn sagði að nú hefði rétturinn refsað honum fyrir að móðga kónginn, sem væri sannarlega alvarlegur glæpur. Saksóknarar neituðu að tala við fjölmiðla eftir dóminn af ótta við að móðga kónginn. Innlendir fjölmiðlar hafa nær engar fréttir flutt af málinu af sömu ástæðu. Svissnesk stjórnvöld ætla sér ekki að gera neitt í málinu þar sem farið var að lögum Taílands í einu og öllu þegar Jufer var dæmdur. Þar að auki hefur hann búið í Taílandi síðastliðin tíu ár og er meðal annars giftur taílenskri konu. Konungurinn nýtur mikillar virðingar í Taílandi og sumir segja að hann hafi átt þátt í því þegar forsætisráðherra landsins var velt af stóli á síðasta ári. Ein kenningin er að herinn hafi tekið völdin vegna þess að forsætisráðherrann hafi móðgað kónginn. Valdaránið fór í það minnsta fram með samþykki konungs. Konungurinn sagði þó nýverið að hugsanlega mætti gagnrýna hann þar sem stundum gæti hann haft rangt fyrir sér.
Erlent Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira