Æfingar hafnar hjá Óperunni 21. febrúar 2007 15:40 Úr sýningu Óperustúdíósins í fyrra, Nótt í Feneyjum eftir Johan Strauss. MYND/Kristján Maack
Óperustúdíó Íslensku óperunnar frumsýnir óperurnar Systur Angelicu og Gianni Schicchi eftir Puccini 21. mars nk. Æfingar eru komnar vel á veg og taka yfir þrjátíu söngnemendur og fjörtíu nemendur í hljóðfæraleik þátt í verkefninu. Þetta er fjórða árið í röð sem Íslenska óperan stendur fyrir Óperustúíói og og reynsla síðustu þriggja ára hefur sýnt að það er mikill áhugi fyrir verkefninu bæði meðal þátttakenda sem og áhorfenda. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason og leikstjóri Ingólfur Níels Árnason. Ingólfur Níels segir það mikilvægt fyrir söngnemendur að fá tækifæri til að taka þátt í verkefni sem þessu; „í Óperustúdíóinu fá nemendur tækifæri til að taka þátt í verkefni sem unnið er að öllu leyti eins og önnur verkefni Íslensku óperunnar og í óperuhúsum almennt. Það er hægt að líta á þátttökuna sem viðbót við námið, hér fá nemendurnir tækifæri til að spreyta sig í leiklist og sviðshreyfingum samhliða söngnum á meðan skólarnir leggja meiri áherslu á söng og raddþjálfun." Leikmynda - og búningahönnuður Óperustúdíósins er Hlín Gunnarsdóttir og ljósahönnuður Jóhann Bjarni Pálmason.Óperustúdíóið er unnið í samstarfi við tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu og Glitnir kemur að kostun verkefnisins þriðja árið í röð.
Mest lesið Hjálmar Örn fékk hjartaáfall Lífið „Þetta sat náttúrlega í manni í mörg ár“ Lífið Angie Stone lést í bílslysi Tónlist Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Menning Vilja valdefla konur í brjóstagjöf Lífið Danir senda annan Færeying í Eurovision Lífið Baltasar, Sunneva og Kilja litla njóta lífsins Lífið Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Lífið Unnur Eggerts, Væb og Ragnhildur Steinunn létu sig ekki vanta Lífið Fleiri fréttir Snerting, Ljósbrot og Ljósvíkingar bítast um Edduna Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Næsti Dumbledore fundinn Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Sjá meira