Vísitölur náðu methæðum í dag 25. janúar 2007 09:45
Hlutabréfavísitölur náðu um tíma methæðum í fyrstu viðskiptum dagsins á helstu fjármálamörkuðum í Vestur-Evrópu í kjölfar birtingar afkomutalna fyrirtækja á síðasta fjórðungi liðins árs. Gengi þeirra ekki verið hærra í sex ár. Úrvalsvísitalan sló með í Kauphöll Íslands á mánudag þegar hún endaði í 6.930 stigum. Hún hefur dalað nokkuð síðan þá og endaði í gær í 6.885 stigum. FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði um 0,2 prósentustig í dag og náði 1.530,9 stigum en vísitalan hefur ekki farið jafn hátt í sex ár. Hún dalaði nokkuð eftir því sem á leið og fór úr meðhæðum. FTSE 100 vísitalan hækkaði sömuleiðis um 0,2 prósentustig og fór í 6.329,4 stig sem er hæsta gildi hennar síðan í janúar árið 2001. Þýska DAX vísitalan hækkaði jafn mikið og hinar tvær auk þess sem CAC 40 vísitalan í Frakklandi hækkaði um 0,1 prósent og snerti lokagildi vísitölunnar sem hún stóð í um mitt ár 2001. Gengi hlutabréfa hefur hækkað mest í þýska raftækjaframleiðandanum Siemens, eða um 4,2 prósent, og í fatakeðjunni H&M sem hækkaði um 5,1 prósent á mörkuðunum í dag. Hagnaður H&M á fjórða ársfjórðungi 2006 nam 3,8 milljörðum sænskra króna, jafnvirði 37,7 milljarða íslenskra króna sem er 18 prósenta aukning á milli ára. Hagnaður Siemens nam hins vegar 788 milljónum evra, jafnvirði 70,4 milljarða króna, á fjórðungnum en það er 16 prósenta samdráttur á milli ára. Sekt samkeppnisyfirvalda Evrópusambandsins dró afkomuna talsvert niður en fyrirtækið var sektað um 423 milljónir evra, 37,8 milljarða íslenskra króna, vegna brota á samkeppnisbrota og verðsamráðs ásamt öðrum fyrirtækjum í Evrópu í gær. Fyrirtækið heldur hluthafafund í dag og er reiknað með því að þar verði greint formlega frá því að fyrirtækið hyggist kaupa bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið UGS fyrir 3,5 milljarða bandaríkjadali, 240,5 milljarða íslenskra króna. Þá er gert ráð fyrir því að hagnaður Siemens aukist um 4 prósent á yfirstandandi fjórðungi.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira