Vinsældastykki og drama hjá Leikfélagi Akureyrar 24. ágúst 2007 08:15 Guðrún Helgadóttir rithöfundur. Gamall hittari rifjast upp.
Leikfélag Akureyrar hefur gengið vel undanfarin ár undir stjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Verkefnaskrá vetrarins var kynnt á miðvikudag og er glæsileg blanda nýrra verka og eldri: nóg verður í boði, bæði í Samkomuhúsinu og í Rýminu, tilraunasviði LA. Bíða menn nú spenntir að sjá hvort árleg aðsóknarmet þar nyrðra eru orðin regla og bendir margoft til að efni sé í enn einn metvetur LA. Fyrsta frumsýning vetrarins er á fjölskylduleikritinu Óvitar! eftir Guðrúnu Helgadóttur í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar. Óvitar voru afar vinsælir fyrir fjölda ára á sviði Þjóðleikhússins en hafa ekki sést áður nyrðra: þar leika fullorðnir börn og börn hina fullorðnu í lítilli bæjarsögu nútímalífshátta. Frumsýning er 15. september og ekki að efa að sýningin mun njóta mikilla vinsælda enda vandað til í hvívetna með stórum hóp listrænna stjórnenda undir forystu Sigurðar Sigurjónssonar leika og leikstjóra. Alls taka 24 leikarar þátt í sýningunni.Flóin snýr aftur orðin íslenskGísli Rúnar Jónsson, leikari, leikstjóri og þýðandi tekst á við Flóna úr frönsku.Önnur mikil vinsældasýning er í vændum um jól þegar flutt verður þýðing og leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar á aldargömlum farsa, Fló á skinni, sem LR lék í tvígang á liðinni öld og tugir þúsunda sáu, bæði á áttunda og seint á níunda áratugnum. Hér reynir á ungan leikarahóp í leikformi sem talið er eitt erfiðasta, farsaleiknum. Gísli hefur þegar getið sér frægðarorð fyrir að feta slóð Emils Thoroddsen í hnyttnum tilfærslum á sígildum gamanleikjum í íslenskt umhverfi. Magnús Geir leikhússtjóri leikstýrir. FjölskyldubrestirBjörn Hlynur Haraldsson, leikari setur sitt fyrsta leikrit á svið.Það eru alvarlegri tónar í tveimur verkum sem koma á svið eftir áramótin: Ökutímar eftir Paulu Vogel er nokkurra ára verðlaunaverk og verður frumsýnt í byrjun nóvember en tónlistarkonan Lay Low semur og flytur tónlistina í sýningunni. Í Ökutímum er tekið á erfiðu máli í fjölskyldu, hvernig nákominn ættingi nýtir sér aðstæður til að koma fram fýsn sinni til unglingsstúlku. María Reyndal leikstýrir en meðal leikenda eru Þröstur Leó Gunnarsson, Guðjón Davíð Karlsson, og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Frumsýning er 2. nóvember í Rýminu en sýningar þar mun TM styrkja á þessum vetri.Eftir áramót verður nýtt íslenskt leikrit, Dubbeldusch eftir Björn Hlyn Haraldsson, frumsýnt en það er sett upp í samstarfi við Vesturport. Leikrit um ástina, lífið, tilviljanir og erfiða valkosti. Leikritið er frumraun Björns Hlyns Haraldssonar sem leikskálds. Frumsýnt um miðjan mars í Rýminu. Meðal leikenda eru Ólafur Darri Ólafsson, Víkingur Kristjánsson, Harpa Arnardóttir og Elma Lísa Gunnarsdóttir.Loksins íslensk klassíkÍ vetur verður efnt til leiklestrarraðar undir nafninu Krónuleikhús en þar verður íslenskri leikhúsklassík gerð góð skil. Flutt verða leikritin Skugga Sveinn, Fjalla Eyvindur og Piltur og Stúlka. Einnig verður leiklesin ný leikgerð upp úr ævi og sögum Nonna sem skrifuð hefur verið fyrir LA. Að minnsta kosti fimm gestasýningar verða á fjölum LA í vetur og má þar nefna sýningu Íslenska dansflokksins á þremur verkum í október: Íslenski dansflokkurinn heldur í þriggja vikna sýningarferðalag um Bandaríkin en kemur norður fyrst. Sýnd verða þrjú af bestu verkum flokksins undanfarið: Maðurinn er alltaf einn eftir Ólöfu Ingólfsdóttur, Elsa eftir Láru Stefánsdóttur og Critic"s choice? eftir Peter Anderson. Sýningin er í senn aðgengileg og kraftmikil og við hæfi allrar fjölskyldunnar. Frelsari og jólasveinnÞá kemur Kristján Ingimarsson með nýtt verk norður, Frelsarann, sem verður sýnt í tvígang í nóvember. Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir sýningunni, en hann er Akureyringum að góðu kunnur fyrir uppsetningar sínar á Maríubjöllunni og Herra Kolbert. Killer Joe, hin lofaða sýning Skámána, kemur norður, Þú ert nú meiri jólasveinninn sem Ágústa Skúladóttir leikstýrir en útlit hannar Katrín Þorvaldsdóttir. Margt fleira er á verkefnaskrá LA: Settur verður á laggirnar leiklistarskóli í samstarfi við Sönglist, farið í leikhúsferð til London og áfram verður boðið upp á leikhúslíf sem valgrein í grunnskólum Akureyrar. Nú er unnið að þróun fjögurra nýrra íslenskra leikrita á vegum leikhússins sem munu birtast á fjölum LA á næstu árum. - pbb
Mest lesið Stóru spurningunni um dularfullt slys enn ósvarað Lífið Þegar miðborgin stóð í ljósum logum Lífið Sjá Jón Kára sem barn með óendanlega möguleika Lífið Hús Björns og Hafdísar það dýrasta sem hefur verið selt Lífið Fresta tökum á Love Island All Stars Lífið Finnur fyrsti óperustjórinn Lífið Bob Weir látinn Lífið Krakkatía vikunnar: Borgarstjóri, Stubbarnir og handbolti Lífið Magnús Eiríksson er látinn Lífið „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Tónlist Fleiri fréttir Maðurinn sem vann með Elton John, ABBA og Donnu Summer Fáum við einn þátt í viðbót af Stranger Things? Blaðri því út um allan bæ að hann sé næsti Bond Béla Tarr er látinn Óttast að kvikmyndahús endi eins og djassklúbbar Játaði ást sína á Jenner Marvel-stjarna varð fyrir heilaskaða Enduðu Stranger Things í Þjórsárdal Fyrsta stiklan úr Íslandsstórvirki Nolan mætt á netið Wire-stjarna látin langt fyrir aldur fram Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Framhald af Napóleonsskjölunum í vinnslu Enginn Óskar til Íslands 2026 Bestu myndir Robs Reiner Dick van Dyke á hundrað ára afmæli Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Nágrannar kveðja endanlega í dag Lawrence og Hutcherson snúa aftur í Hungurleikana Ósáttur við framhaldið: „Skildu ekki hvað gerði þá fyrstu sérstaka“ „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Yrsa, Hannes og Björg í eina sæng með Thule Sjá meira