Fótbolti

Þetta var ótrúlegt

fréttablaðið/daníel

„Mér líður mjög vel, þetta var ótrúlegt. Við höfðum reyndar allan tímann trú á því að við gætum unnið þetta lið," sagði Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði Íslands eftir sigurinn gegn Frökkum í gær.

„Leikurinn þróaðist nákvæmlega eins og við vildum og við náðum að spila agaðan og skipulagðan varnarleik. Við vissum að við myndum fá okkar færi og þrátt fyrir að þau væru ekki mörg nýttum við eitt og það dugði," sagði Ásthildur, en hún og Margrét Lára náðu vel saman í framlínunni.

„Við náum mjög vel saman og náðum þó að skapa nokkur færi, það getur verið nóg. Með svona góðum varnarleik þá erum við með hættulegt lið. Ég held að þetta séu ein bestu úrslit sem kvennalandsliðið hefur náð en þetta var mjög erfiður leikur. Við hlupum mjög mikið og lentum í smá eltingaleik, sérstaklega í seinni hálfleik. Við náðum að koma okkur aðeins betur inn í leikinn og skora en nú er mikilvægt að koma okkur niður á jörðina og taka Serbana," sagði Ásthildur.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×