Sendiherra Íslands kallaður til fundar við sjávarútvegsráðherra Breta 18. október 2006 21:43 Ben Bradshaw, sjávarútvegsráðherra Bretlands. MYND/Róbert Reynisson
Ben Bradshaw, sjávarútvegsráðherra Bretlands, hefur kallað Sverri Hauk Gunnlaugsson, sendiherra Íslands í Bretlandi, á sinn fund. Þar verður honum gert að skýra forsendur þær sem liggi fyrir ákvörðun íslenskra stjórnvalda að leyfa hvalveiðar í atvinnuskyni á ný. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá þessu á vefsíðu sinni. Bradshaw segir stefnu íslenskra stjórnvalda óskiljanlega og óafsakanlega. Hann segir engin rök að baki ákvörðuninni. Auk þess geti Íslendingar varla fundið markað fyrir hvalkjöt. Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu sjávarútvegsráðuneytisins, segir í samtali við BBC að íslensk stjórnvöld hafi ekki áhyggjur. Auðvitað hafi Íslendingar átt í góðum samskiptum við Breta og önnur lönd og vonir bundar við að fulltrúar ríkja sem séu okkur ósammála reyni þó að sjá málin frá sjónarhorni Íslendinga. Hann bætir því við að vitað sé um andstöðu breskra stjórnvalda við hvalveiðum. Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, tilkynnti á Alþingi í gær að hvalveiðar í atvinnuskyni og veiðar á stórhvölum yrðu hafnar á ný. Heimilað verður að veiða 9 langreyðar og 30 hrefnur til viðbótar þeim 39 hrefnum sem áður var ákveðið að yrðu veiddar í vísindaskyni.
Erlent Fréttir Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira