Innlent

Samkeppni íslenskra háskóla ekki af hinu góða

Samkeppnisumhverfið sem íslenskir háskólar búa við er ekki af hinu góða. Þetta er meðal þess sem gagnrýnt er í nýrri skýrslu OECD um íslenska háskólakerfið. Þar kemur einnig fram að gæðaeftirlit með skólunum er ófullnægjandi.

Skýrslan var kynnt í Iðusölum við Lækjargötu í dag en efni hennar var upphaflega gert opinbert á heimasíðu OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar, fyrir rúmum tveimur vikum. Sex sérfræðingar um menntamál unnu úttektina og eru þeir harðorðir á sumum stöðum í skýrslu sinni, segja til að mynda að skýra stefnu um gæðaeftirlit háskólanáms hér á landi vanti algjörlega og huga þurfi alvarlega að gæðum námsins og fjármögnun þess.

„Það er ekki auðvelt fyrir ríki þegar háskólastigið vex jafn hratt og það hefur gert hér á landi, en slík þróun kallar á nýja forgangsröðun," segir Paulo Santiago, sérfræðingur OECD, sem kynnti skýrsluna í dag. „Þar skiptir mestu máli að endurskoða þann þátt sem snýr að stjórnkerfinu, og ekki leggja of mikla áherslu á að skólarnir eigi að vera í samkeppni."

Í skýrslunni er fundið að því að einungis einkareknir háskólar megi lögum samkvæmt innheimta skólagjöld, en ekki þeir ríkisreknu. Santiago segir eðlilegt að einkaskólarnir hafi haft þessi „fríðindi", ef svo má að orði komast, fyrst eftir að þeir voru stofnaðir, „en nú þegar skólarnir hafa öðlast sinn sess í menntakerfinu teljum við tímabært að hugað sé að leiðréttingu á þessu í samkeppnisumhverfi skólanna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×