Innlent

Starfsemi leikhúsanna kynnt í nýjum bækling

Frá sýningu Íslenska dansflokksins.
Frá sýningu Íslenska dansflokksins. Mynd/Vísir

Fulltrúar leikhúsanna á Íslandi komu saman í Hressingarskálanum í dag til að kynna úgáfu bæklings sem innheldur upplýsingar um allt það sem verður á dagskrá leikhúsanna á komandi leikári. Þetta er í fyrsta sinn sem leikhúsin taka sig saman með þessum hætti en það eru Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Íslenska Óperan, Íslenski dansflokkurinn, Sjálfstæðu leikhúsin og Útvarpsleikhúsið sem standa að útgáfunni. Með þessu móti vilja aðstandendur leikhúsa sýna samstöðu og gefa almenningi kost á að kynna sér á auðveldan og þægilegan hátt það sem er að gerast í leikhúsunum í vetur. Bæklingnum verður dreyft í hús á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×