Innlent

Magni og frú fá dúnsængur

MYND/Hrönn
Það er greinilegt að árangur Magna Ásgeirssonar í Rockstar:Supernova gleður marga. Fréttavefurinn Austurlandið punktur is greinir frá því að eigendur verslunarinnar Gæði og mýkt á Grensásvegi hafi ákveðið að gefa Magna og konu hans dúnsængur og dúnkodda fyrir frábæran árangur í raunveruleikaþættinum. Það er því ljóst að Magni mun ekki koma tómhentur frá keppninni, hver sem úrslitin verða, en nú þegar bíður hans ein milljón króna sem SPRON hét á hann og sængin góða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×