Innlent

Útlán Íbúðalánasjóðs dragast saman

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 3,2 milljörðum króna í ágúst og drógust saman um tæpa tvo milljarða frá fyrra mánuði þegar þau námu 5,1 milljarði. Fram kemur á vef Íbúðalánasjóðs að samdráttinnn megi hugsanlega skýra með sumarleyfum fólks en einnig virðast umsvif á fasteignamarkaði hafa minnkað almennt eins og áður hefur verið nefnd á vegna breyttra markaðsaðstæðna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×