Innlent

Ekkert eftirlit með merkjum frá ratsjárstöðvum

Fjórar ratsjárstöðvar eru á útpóstum landsins og fylgjast með flugumferð í kringum landið. NATO boragði fyrir þessar stövðar og hefur Ratsjárstofnun séð um rekstur þeirra. Fyrirtækið Kögun hefur haft umsjón með hugbúnaðarrekstri loftrvarnarkerfisins.

Upplýsingar frá stöðvunum eru notaðar annars vegar við almenna flugumsjón en hins vegar til að verja lofthelgina. Með þessum ratsjárstövðum geta flugvélar ekki laumað sér um lofthelgina óséðar - það er að segja ef einhver kærir sig um að horfa á skjánna og fylgjast með merkjunum. Fyrir nokkrum vikum hætti Bandaríkjaher þessu eftirlitshlutverki. Vilhjálmur Þortsteinsson, stjórnarmaður í Kögun staðfestir að flugherinn hafi tekið sínar pjökkur sama og yfirgefið stjórnstöðina á Keflavíkurflugvelli. Segir Vilhjálmur að þar standi auðir stólar fyrir framan radarskjánna og enginn fylgist með merkjunum. Þó komið sé að leiðarlokum þessa verkefnis hjá Kögun skiptir það óverulegu máli fyrir rekstur fyrirtækisins, að sögn Vilhjálms.

Öðru máli kann að skipta fyrir Ratsjárstofnun en þar eru störf 60 starfsmanna í uppnámi. Engar upplýsingar fást þar gefnar um framtíðinina og er vísað í utanríkisráðuneytið. Þar er - sem fyrr - fátt um svör enda er framtíð þessa loftvarnakerfis eitt af bitbeinunum sem tekist er á um við samningaborðið í varnarviðræðunum við Bandaríkjamenn.

Samkæmt traustum heimildum hafa Bandaríkjamenn ekki sýnt því neinn áhuga að halda áfram að reka þessar stöðvar - sem þó ætti að vera einn hornsteinninn í loftvörnum landsins og raunar allra NATO ríkja. Það er sum sé ekki nóg með að bandaríkjaher sé farinn með herþoturnar (hinar svokölluðu sýnilegu loftvarnir) - hann er hættur öllu eftirliti með því að óvinveitt loftför, hver svo sem þau ættu að vera, geti laumað sér inní - eða í gegnum lofthelgina.

Árlegur kostnaður við reksturinn er einn komma tveir milljarðar króna. Samkæmt sömu heimildum hafa íslendingar í hyggju að reka þessar stöðvar áfram og reyna að tryggja að loftvarnareftirlitsþættinum verði sinnt - með einum eða öðrum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×