Innlent

Á skrá yfir kynferðisglæpamenn næsta áratuginn

Íslendingurinn, sem dæmdur var í fangelsi í Englandi í gær fyrir kynferðisbrot gegn ungri stúlku, verður á skrá yfir kynferðisglæpamenn þar í landi næsta áratuginn.

Íslendingurinn sem er 23 ára var dæmdur í 16 mánaða fangelsi í gær, en að öllum líkindum fær hann reynslulausn þegar hann hefur lokið afplánun helmings dómsins, en það er eftir mánuð, því hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því hann var handtekinn með stúlkunni á hótelherbergi í Burnley í febrúar, eða fyrir sjö mánuðum.

Þegar komið var að honum þar voru bæði fáklædd. Í dómsorði segir að hann sé sakfelldur í kjölfar játningar um kynferðisbrot gegn stúlkunni sem og fyrir að hafa tælt hana. Auk 16 mánaða dómsins verður maðurinn á skrá yfir kynferðisbrotamenn í Bretlandi í 10 ár, en auk þess leggur dómurinn til að manninum verið vísað frá Bretlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×