Innlent

Hyggst reyna aftur að ári

Benedikt S. Lafleur hætti í morgun við þreksund sitt yfir Ermarsund vegna óhagstæðra skilyrða. Hann er þó ekki af baki dottinn og hyggst reyna aftur að ári, breytist veðrið ekki til batnaðar á næstu dögum.

Benedikt hugðist þreyta sundið til þess að safna áheitum gegn mansali. Benedikt lagði af stað í morgun en varð frá á hverfa vegna hvassviðris og þess að vont var í sjóinn.

Veðruspáin er ekki góð fyrir næstu daga og Benedikt er ekki bjartsýnn á að hann geti synt Ermasundið að þessu sinni en hyggst þó reyna á ný næsta sumar. Ferðin er þó ekki til einskins því Benedikt og félagar hyggjast gera heimildarkvikmynd um sjósundið og hafa þeir safnað miklu efni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×