Innlent

Safna fyrir byggingu skóla í Pakistan

Borgarholtsskóli.
Borgarholtsskóli. Mynd/Pjetur

Nemendur og starfsmenn Borgarholtsskóla munu ferðast leiðina til Pakistan í dag. Í tilefni 10 ára afmælis skólans er efnt til táknræns hlaups, göngu og/eða hjólreiða nemenda og starfsmanna skólans í fjáröflunarskyni og er markmiðið að samanlagður kílómetrafjöldi sem lagður verður að baki verði jafn vegalengdinni í loftlínu á milli Íslands og Pakistan. Til þess að takmarkið náist þurfa rúmlega 700 manns að fara 10 km hver hlaupandi, gangandi eða hjólandi í afmarkaðan hring í Grafarvogi. Markmið fjáröfluninnar er að efla skólastarf fyrir fátæk börn í Pakistan og safna fyrir byggingu nýs skóla en söfnunin er í samstarfi við ABC- barnahjálp og Grafarvogskirkju.

Hægt er að styrkja söfnunina með framlagi með því að hringja í síma 908-1112 og þannig gefa 1.000 kr til söfnunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×