Innlent

16 mánaða dómur fyrir kynferðisbrot gegn stúlku

Tuttugu og þriggja ára Íslendingur var í dag dæmdur í 16 mánaða fangelsi í Burnley fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára gamalli enskri stúlku fyrr á árinu. Líklegt er að hann afpláni aðeins átta mánuði af dómnum en hann hefur þegar setið í gæsluvarðhaldi í sjö mánuði sem dregst frá dómi. Maðurinn kynntist stúlkunni, sem er 14 ára, á Netinu og fór hann til Englands til að hitta hana. Hann var svo gripinn á hóteli í Burnley 22. febrúar síðastliðinn og handtekinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×