Innlent

Vináttuhlaupinu lýkur hér á landi

World Harmony Vináttuhlaupinu lýkur formlega nú fyrir hádegi þegar hlauparar Vináttuhlaupsins ásamt krökkum úr Austurbæjarskóla hlaupa frá Hallgrímskirkju niður í Ráðhús Reykjavíkur. Þar mun Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi taka við Vináttukyndlinum fyrir hönd borgarinnar en boðskapur hlaupsins er að veröld sáttar og samlyndis hefjist með hverjum og einum. Hlaupararnir í Vináttuhlaupinu hafa hlaupið á milli grunnskóla í Reykjavík undanfarna daga en þeir hafa nú þegar ferðast um 35 af 48 löndum Evrópu. Hlaupinu lýkur 10. október í Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×