Innlent

Fimm grunaðir um fíkniefnamisferli

MYND/Hari

Lögregla hafði afskipti af fimm mönnum í Reykjavík um helgina sem grunaðir voru um fíkniefnamisferli, og hitti hún á þá við misjafnar aðstæður. Tveir voru stöðvaðir í bílum sínum við reglubundið eftirlit, einn var gripinn á förnum vegi og annar þegar hann var fluttur á slysadeild eftir áflog. Þann fimmta sótti lögreglan inni á salerni á skemmtistað en ekki fylgdi sögunni við hvaða iðju maðurinn sat þar inni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×