Innlent

Ungmennin yfirheyrð í dag

Til óeirða kom milli lögreglu og unglinga í Skeifunni skömmu eftir miðnætti í nótt en hátt í 200 unglingarnir voru þar samankomnir vegna einkasamkvæmis. Lögregla beitti kylfum í átökunum en tíu manns voru handteknir og gistu fangageymslur í nótt.

Ungmenning höfðu safnast saman vegna einkasamkvæmis sem haldið var í Húnabúð, sem er salur á vegum Húnvetningafélagsins í Skeifunni 11. Færri komust þó að en vildu í samkvæmið en um hundrað og fimmtíu til tvö hundruð ungmenni voru utandyra. Öryggisverðir sem voru á ferð í nágrenninu sáu hvar ungur maður kastaði af sér þvagi í hraðbanka SPRON og létu þeir lögreglu vita. Þegar lögreglumenn komu á vettvang fengu þeir ábendingu um að einn maður hafi skallað annan og ætluðu að hafa tala af honum sökum þess. Hann brást hinn versti við og var þá handtekinn. Nokkur hópur ungmenna veittist þá að lögreglunni og reyndi að koma í veg fyrir handtökuna og frelsa manninn. Lögreglan átti fótum sínum fjör að launa og þurfti að flýja af vettvangi með hinn handtekna á meðan grjóti og flöskum ringdi yfir lögreglubifreiðina.

Allt tiltækt lögreglulið Reykjavíkur var því kallað út og voru á þríðja tug lögreglumanna frá lögreglunni í Reykjavík og Sérsveit RLS á vettvangi er mest var. Ítrekuðum fyrirmælum lögreglu til ungmennanna um að koma sér á brott var ekki sinnt. Til mikilla átaka kom á milli lögreglu og unglinganna en ungmennin létu öllum illum látum að sögn lögreglu, sem beitti kylfum í átökunum. Tíu manns voru handteknir og gistu þeir fangageymslur í nótt. Ungmennin, sem öll eru á framhaldsskólaaldri verða yfirheyrð í dag. Þau eiga hugsanlega yfir sér ákæru eða sektir fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og hindra hana í starfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×