Lífið

Miðaldamarkaður á Gásum vel sóttur

Miðaldamarkaðurinn á Gásum var vel sóttur og hafa aldrei fleiri lagt leið sína þangað.
Miðaldamarkaðurinn á Gásum var vel sóttur og hafa aldrei fleiri lagt leið sína þangað.

Minjasafnið á Akureyri ásamt Gásahandverkshópnum stóð fyrir miðaldamarkaði á Gásum helgina 22. og 23. júlí. Þetta er í fjórða skiptið sem líf og fjör er í búðatóftum miðaldakaupstaðarins á Gásum en í fyrsta skiptið sem uppákoman varir heila helgi. Aldrei hafa fleiri lagt leið sína á þennan viðburð eða rúmlega 1400 manns.

Gestir fengu tækifæri til að hverfa aftur til síðmiðalda og kynnast starfsháttum og menningu þess tíma. Kaupmenn og handverksfólk frá Danmörku, Noregi og Íslandi, klætt miðaldaklæðnaði, bauð varning til sölu en ýmsar uppákomur voru báða dagana. Tilraun var gerð til brennisteinshreinsunar með gömlum aðferðum. Félagar frá Middelaldercentret skutu úr miðaldafallbyssu og sýndu bardagalist að hætti riddara með spjótum og sverðum. Högg járnsmiðsins og blástur físibelgsins mátti heyra um svæðið auk fagurra tóna Hymnodia sönghópsins, sem söng evrópsk lög frá 13. og 14. öld. Gestir gátu einnig fylgst með jurtalitun, tálgun, brauðbakstri og kjötsúpugerð auk þess að láta völvuna spá fyrir sér með rúnalestri. Ungir og gamlir uppgötvuðu hæfni sína í steinakasti og bogfimi. Miðaldakjösúpan var matreidd af meistarkokknum Friðriki V og starfsfólki hans og fengu færri færi á að smakka en vildu vegna mikillar aðsóknar. Fornleifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands, sem nú vinnur að fornleifarannsóknum á miðaldakaupstaðnum Gásum, voru við störf báða dagana og greindu frá niðurstöðum sem þegar liggja fyrir. Allt hjálpaði þetta til við að skapa verslunarstemningu síðmiðalda.

 

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×