Lífið

Lögin hans Jóns míns

Gunni og Felix með plötuna Lögin hans Jóns míns
Gunni og Felix með plötuna Lögin hans Jóns míns

Gleðigjafarnir Gunnar Helgason og Felix Bergsson senda frá sér plötuna  Lögin hans Jóns míns sem kemur út þann 21. júlí næstkomandi hjá Senu. Platan inniheldur bestu og vinsælustu lögin sem hinn kunni tónlistarmaður Jón Ólafsson hefur samið fyrir þá félaga í gegnum tíðina, enda er platan nefnd honum til heiðurs.

Gunni og Felix hafa unniðsaman nær sleitulaust  frá árinu 1993 og hafa börn þessa lands aldeilis fengið að njóta þess farsæla  samstarfs. Þeir slógu í gegn sem umsjónarmenn Stundarinnar okkar í Sjónvarpinu ári  síðar og hafa í kjölfarið sent frá sér myndabandsspólur, geislaplötur og hljóðsnældur. Ekki má gleyma að minnast á þær óteljandi skemmtanir út um allt land þar sem Gunni og Felix hafa kætt krakkana, stóra og smáa. Þeir hafa einnig komið fram á  21 geislaplötu í hlutverkum hundanna Trausts og Tryggs sem ættu að vera orðnir þekktustu hvuttar landsins.

Gunna og Felix hefur tekist að sveipa sveitalífið, þjóðsögur og íslenska náttúru álíka ævintýraljóma í hugum barna nýrrar aldar og tölvuleikir og teiknimyndir. Og eldri kynslóðin skemmtir sér ekki síður við léttleikandi lög Jóns og hnyttnu textana eftir þá félaga og má segja að hinn brosandi og bjarti boðskapur þeirra Gunnars Helgasonar og Felix Bergssonar eigi við á hvert heimili.

Upptökustjórn og útsetningar eru í höndum Jóns Ólafssonar. Söngur er fluttur af Gunna og Felix en rödd og söngur Ólafíu Hrannar Jónsdóttur kemur einnig við sögu ásamt barnakór. Jóhann Hjörleifsson spilar á trommur en Stefán Már Magnússon spilar á bassa og gítar ásamt Jóni Elvari Hafsteinssyni.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×