Lífið

Jónsmessuganga á Þorbjörn

Laugardagskvöldið 24. júní munu Bláa Lónið og Grindavíkurbær í samstarfi við Leiðsögumenn Reykjaness bjóða upp á hina árlegu Jónsmessugöngu á fjallið Þorbjörn. Gangan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár en hér er um að ræða skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Lagt verður af stað frá sundlaug Grindavíkur kl. 20.30 og er áætlað að gangan taki um þrjár klukkustundir.

Þegar á toppinn er komið munu þeir Sigtryggur Baldursson (Bogomil Font) og Róbert Reynisson skemmta þátttakendum og spila calypso tónlist með íslenskum textum sem vakið hefur mikla athygli undanfarið. Göngunni lýkur við Bláa lónið sem verður opið til klukkan 01.00 eftir miðnætti í tilefni göngunnar. Þar verður boðið upp á lifandi tónlist og þátttakendum boðið upp á Blue Lagoon kokteil.

Enginn þátttökukostnaður er í gönguna en þátttakendur greiða aðgang í Bláa lónið.

Kynnisferðir verða með sætaferðir til Grindavíkur frá BSÍ klukkan 19.30 og SBK kl. 20.00 frá Reykjanesbæ. Sætaferðir frá Bláa Lóninu verða til Grindavíkur, Reykjanesbæjar og Reykjavíkur kl. 01:00.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×