Lífið

Dagur hinna villtu blóma

Þann 18. júní næstkomandi verður haldið upp á dag hinna villtu blóma á öllum Norður¬löndunum. Þá verður efnt til tveggja tíma blómaskoðunar á 13 stöðum vítt og breitt um landið, með leiðsögn plöntufróðra manna. Þátttaka er ókeypis, aðeins mæta á réttum stöðum á réttum tíma.

Þetta er upplagt tækifæri fyrir alla fjölskylduna, unga sem aldna, að læra að þekkja blómin sem vaxa í kring um okkur. Flóruvinir standa að þessum degi hér á Íslandi, en á flestum hinna Norðurlandanna eru það grasafræðifélög landanna (botanisk Forening), sem skipuleggja daginn.

Mæting er sem hér segir í kring um landið:



1. Reykjavík, Undirhlíðar í Reykjanesfólkvangi. Brottför með rútu frá Ferðafélagi Íslands Mörkinni 6, kl. 10:00 og ekið að Undirhlíðum til plöntuskoðunar. Á eftur verður farið í Grasagarðinn í Laugardal, sem stendur að plöntuskoðuninni ásamt Ferðafélagi Íslands. Ferðalok um kl. 14:00. Leiðsögn: Eva G. Þorvaldsdóttir.

2. Hvanneyri. Mæting við Hvanneyrarkirkju kl. 13:00. Leiðsögn: Björn Þorsteinsson og Anna Guðrún Þórhallsdóttir.

3. Ísafjörður. Mæting á tjaldstæðinu í Tungudal kl. 13:00. Leiðsögn: Helga Friðriksdóttir.

4. Hólmavík. Mæting á Upplýsingamiðstöð ferðamála við tjaldsvæðið kl. 13:00. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson.

5. Skagafjörður. Mæting á Skarðsá, fremst í Sæmundarhlíð kl. 16:00. Leiðsögn: Gróa Valgerður Ingimundardóttir.

6. Siglufjörður. Mæting við Siglufjarðarkirkju kl. 13:00. Leiðsögn: Sigurður Ægisson.

7. Dalvík, Hrísahöfði. Mæting við afleggjarann upp á Hrísahöfða kl.16:00. Leiðsögn: Þórir Haraldsson.

8. Akureyri, Krossanesborgir. Mæting við bílastæðið sunnan Lónsbakka austan Hörgárbrautar kl. 10:00. Leiðsögn: Elín Gunnlaugsdóttir.

9. Mývatnssveit. Mæting á bílastæði göngustígs inni á afleggjara að Kálfaströnd kl. 10:00. Leiðsögn: Hörður Kristinsson.

10. Fljótsdalshérað, Unaós. Mæting á Unaósi á bílastæðinu við upphaf gönguleiðarinnar í Stapavík kl. 14:00. Leiðsögn: Þorsteinn Bergsson og Soffía Ingvarsdóttir.

11. Neskaupstaður. Mæting á bílaplaninu úti í Fólkvangi (hjá vitanum) kl. 10:00. Leiðsögn: Guðrún Á. Jónsdóttir.

12. Höfn í Hornafirði, Óslandið. Mæting við Gistiheimilið Ásgarð kl. 13:30. Leiðsögn: Brynjúlfur Brynjólfsson, gengið verður um Óslandið.

13. Skaftafell í Öræfum. Mæting við Þjónustumiðstöðina í Skaftafelli kl. 14:00. Leiðsögn: Hálfdán Björnsson.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×